Ísfirskar fótboltapæjur fjölmenna á Siglufjörð
bb.is | Fréttir á landsvísu | 06.08.2009 | 22:03 | | Lestrar 427 | Athugasemdir ( )
Fjöldi ísfirskra fótboltastúlkna eru nú á leið á Pæjumótið á Siglufirði en mótið fer fram um helgina. Um 65 stelpur eru í þessum fjölmenna hópi en Boltafélag Ísafjarðar teflir fram liðum í öllum flokkum mótsins, þ.e. 4.,5.,6. og 7. flokki. Þegar hafa um 90 lið skráð sig til leiks og greinilegt er að bærinn mun vera undirlagður af ungum og upprennandi fótboltastúlkum því von er á um 900 keppendum víðs vegar af landinu.
Að sögn Birnu Jónasdóttur þjálfara stúlknanna er einnig mikill fjöldi aðstandenda með í för og því ljóst að margir Ísfirðingar verða fyrir norðan yfir helgina. „Það er mikil stemmning í stelpunum enda hlakka þær mikið til að taka þátt í þessu skemmtilega móti. Það er von á miklum fjölda á svæðið og spáð þessu fína veðri, þannig að við búumst við rosalega skemmtilegri helgi.“
Ísfirskir fótboltastrákar sitja ekki heldur auðum höndum um helgina en einnig fer 5. flokkur BÍ á Króksmótið á Sauðárkróki sem hefst á morgun.
nonni@bb.is

Athugasemdir