Jakob Snær vinningshafi í 14 umferð Draumaleiksins
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 22.08.2009 | 12:56 | | Lestrar 402 | Athugasemdir ( )
Jakob Snær Árnason hlaut fyrstu verðlaun í 14 umferð Draumaleiksins en leikurinn gengur út á að senda inn lið vikunar í Pepsi-deild karla í Íslensku knattspyrnunni.
Að launum hlaut Jakob ferð í hinn víðfræga knattspyrnuskóla Man United á næsta ári.
Jakob er KS-ingur í gegn og þykir með efnilegri drengjum í hans aldursflokki á landinu og verður spennandi að fylgjast með stráksa í framtíðinni.

Liverpool er liðið hans á Englandi og eru fáir jafn harðir stuðningsmenn og hann sem dæmi má nefna að ef hann fær einhverjar gjafir í knattspyrnuskóla Man United þá ætlar hann bara að gefa þær segir móðir hans Gíslína Salmannsdóttir.

Jakob spá Liverpool næsta auðveldum sigri í ensku úrvalsdeildinni og í Meistaradeild Evrópu vinnur Liverpool Barselóna 3-1 í úrslitaleiknum.

Uppáhaldsleikmenn Jakobs eru Torres og Gerrard og stefnir Jakob að því að spila með Liverpool og A- liði Íslands þegar hann hefur aldur til.

Hér eru þeir félagar Jakob Snær og Jakob Auðunn en þeir spá Man United falli og skella uppúr.

Athugasemdir