Jólin eru að koma...
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 18.12.2009 | 07:00 | | Lestrar 458 | Athugasemdir ( )
Á jólaskemmtun Systrafélags Siglufjarðarkirkju sem haldin var á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar í vikunni, las Brynja Stefánsdóttir þrjár jólasögur.
Hér eru sögurnar, njótið.
Tengd frétt HÉR

"Öðruvísi jólasaga"
Ritgerð eftir barn í grunnskóla:
Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni er Jesús. Hann var frá Nazaret í Egyptalandi. Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna þess að öll hótel voru full.
Mamma hans hét María og stjúppabbi hans Jósef.
Hann var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var áður gift einhverjum Gabríel, en hann var floginn í burtu.
Þegar Jesús var nýfæddur áttu þrír jólaveinar leið fram hjá fjósinu og þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar jólagjafir og reykelsi handa hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar sem þau höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að það átti að telja þau.
Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í þá daga voru börnin ekki skírð fyrr en þau voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda, því þau voru nefnilega alveg færð í kaf.
Þegar Jesús varð átta ára gaf pabbi hans honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára kunni hann hana utan að, og það var vel af sér vikið, því í þá daga var Biblían svo stór að það varð að vefja hana upp á kefli.
Jesús gerði mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann var á gangi í Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu sínu úti á miðri götu. Jesús sagði: “Tak sæng þína og gakk.” Maðurinn gerði það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar...

Lítil hjartnæm jólasaga
Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum.
Maður nokkur refsaði 3ja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír. Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð.
Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: "Þetta er handa þér pabbi". Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar, "veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á eitthvað að vera í henni?"
Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: "Ó pabbi boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara fyrir þig pabbi." Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.
Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans, þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.
Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur tekið á móti gylltum boxum frá börnunum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum. Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.
Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum. Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar, en ekki í höndum þínum

Grýla
Grýla er kannski hræðilega ljót en hún er löngu hætt að borða börn og gerir ekki flugu mein. Reyndar langar hana voðalega mikið að kynnast ykkur en það eru allir svo hræddir við hana að hún er löngu hætt að koma til byggða. Ég skal segja ykkur frá því þegar Grýla skrapp til Reykjavíkur um dagana. Hún tölti bara niður í miðbæ í rólegheitunum og ætlaði í eitt skiptið fyrir öll að fara á hárgreiðslustofu og fá flotta klippingu. Hún fann ágætis hárgreiðslustofu og þrammaði inn. Það var uppi fótur og fit þegar Grýla kom inn og allir hlupu í felur nema lítil, horuð hárgreiðslukona. Grýla settist í stólinn og bað konuna að greiða hárið á sér og snyrta það aðeins. Þegar konan ætlaði að greiða þennan hárlubba brotnaði burstinn af því að hárið á Grýlu er eins og ryðguð víraflækja. Konan sagðist því miður ekki geta hjálpað henni svo Grýla varð að fara út af hárgreiðslustofunni enn úfnari en áður.Grýla greyið var svolítið hnuggin en ákvað að fara bara í búðina við hliðina og kaupa sér ný föt. Þegar Grýla kom þangað inn fann hún vatnsgreiddan mann sem var víst afgreiðslumaðurinn. Grýla bað manninn að sýna sér föt af sinni stærð en maðurinn sagði að það væru ekki framleidd svo stór föt. Grýla var nú orðin mjög niðurdregin og ætlaði að halda heim en Grýla ætlaði fyrst að kaupa sér ís til að hressa sig við. Grýla fékk ís og hresstist talsvert við það. En þegar hún tölti gegnum torgið urðu allir hræddir við Grýlu og hlupu eins og fætur toguðu í allar áttir. Þegar Grýla var komin heim ákvað hún að fara ekki til byggða aftur nema í algjörri neyð. Svo þannig fór það og Grýla hefur ekki sést síðan. Nú vitið þið allt um ferðir Grýlu til byggða og ég vona að ykkur hafi líkað þessi saga og þið skulið muna að þetta er dagsatt. Ég vona að þið eigið gleðileg jól og ég von að Grýla eigi líka gleðileg jól.
Endir. Glódís Ingólfsdóttir Vopnafirði

Athugasemdir