Kajakróður
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 17.08.2009 | 14:00 | | Lestrar 584 | Athugasemdir ( )
Líney Rut Halldórsdóttir og Oddný Sigsteinsdóttir voru staddar hér á Siglufirði um helgina. Þær fóru í kajakferð á spegilsléttum sjónum og nutu veðurblíðunnar.
Kajaksiglingar eru sérlega friðsæl og skemmtileg afþreying og frábær leið til að skoða náttúruna frá öðru sjónarhorni, óvenjuleg reynsla, sem gleymist seint. Linda Gylfa var ekki lengi að þiggja gott boð Líneyjar um að prófa kajakinn. Hún var gölluð upp í hvelli og hent út í djúpu laugina! Meðfylgjandi myndir tala sínu máli.

Berglind Gylfadóttir

Athugasemdir