Kirkjuskólinn er skemmtilegur
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 12.10.2009 | 07:00 | | Lestrar 452 | Athugasemdir ( )
Þetta voru orð ungs nemanda við kirkjuskólann í gærmorgun. Bæði börn og foreldrar mæta alltaf í kirkjuskólann á sunnudagsmorgnum segir Sigurður Ægisson sóknarprestur. Yfirleitt byrjar þetta rólega eða um 40 manns en svo bætist jafnt og þétt í hópinn fram á vor og við suma viðburði er einfaldlega ekki nóg pláss slík er aðsóknin.
Kirkjuskólinn hefst kl. 11:15 á sunndagsmorgnum, mikið er sungið og farið yfir ýmiskonar fróðleik í kirkjunni en að því loknu er farið á kirkjuloftið til að fá sér hressingu og þar má finna liti, leir, púsl, tafl segir Sigurður. Öflugur hópur stendur að kirkjuskólanum en það eru sómafólkið Sigurður Ægisson, Sigurbjörg Gunnólfsdóttir, Viðar Aðalssteinsson og Rut Viðarsdóttir.
Myndir HÉR
Sigurður Ægisson, Viðar Aðalssteinsson, Rut Viðarsdóttir og Sigurbjörg Gunnólfsdóttir.

Athugasemdir