Knattspyrnuleikur ársins

Knattspyrnuleikur ársins Það er alltaf mikil tilhlökkun þegar knattspyrnuleikurinn Norðurbær-Suðurbær fer fram 17. júní ár hvert. Eins og venjulega eru

Fréttir

Knattspyrnuleikur ársins

Keppendur 17. júní 2009
Keppendur 17. júní 2009
Það er alltaf mikil tilhlökkun þegar knattspyrnuleikurinn Norðurbær-Suðurbær fer fram 17. júní ár hvert. Eins og venjulega eru það krakkar úr 7. flokk KS sem skipa liðin. Þarna eru á ferðinni knattspyrnufólk framtíðarinnar og er ekki annað að sjá en efniviðurinn sé mjög góður og engu að kvíða í framtíðinni.
Krakkarnir gengu fylktu liði frá KS-skrifstofunni og niður á sparkvöll þar sem leikurinn fór fram. Ekki eru úrslitin aðal atriðið í þessum leik heldur ánægan að fá að spila í búning fyrir framan vini og ættingja sem fjölmenntu á leikinn og hvöttu krakkana til dáða. Knattspyrnuhetjunum ungu voru síðan afhent verðlaunapeningar að leik loknum og sáust mörg krakkana bíta í peningana líkt og hetjurnar gera að leik loknum í heimsmeistarakeppninni.

Myndir HÉR 

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst