Knattspyrnuskólanum slitið
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 13.06.2009 | 18:41 | | Lestrar 600 | Athugasemdir ( )
Knattspyrnuskóla Grétars Rafns Steinssonar var slitið á föstudaginn. Skólinn sem byrjaði á mánudaginn var mjög vel sóttur en um 130 börn víðsvegar af landinu sóttu skólann.
Fimm úrvals þjálfarar frá Bolton Akademíunni voru leiðbeinendur við skólann en þeir hafa farið um allann heim til að kenna börnum knattspyrnu og innsýn í heim atvinnumanna í knattspyrnu og hvað þarf til að ná jafn langt og Grétar Rafn hefur gert. Grétar Rafn Steinsson er gott dæmi um knattspyrnumann, sem með dugnaði og sjálfsaga hefur náð þeim frábæra árangri að spila í sterkustu knattspyrnudeild í heimi, ensku úrvalsdeildinni. Hann ólst upp á Siglufirði og spilaði með KS í yngstu aldursflokkunum, en gekk til liðs við ÍA í þriðja flokki. Af Skaganum lá leið hans árið 2005 til Young Boys í Sviss, en síðar á árinu keypti hollenska félagið AZ Alkmaar hann. Grétar Rafn hefur leikið með Bolton Wanderers frá janúar 2008 til dagsins í dag.
Grétar Rafn vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lögðu skólanum lið en án öflugs baklands væri þetta mjög erfitt. Ensku þjálfararnir bera nemendum skólans bestu þakkir fyrir frábæra viku og sögðu siglo.is að þeir hefðu séð þó nokkuð af mjög efnilegum krökkum sem hefðu alla burði til að gerast atvinnumenn og konur í fótbolta í framtíðinni. Að sjáfsögðu verður skólinn að ári, sagði Grétar Rafn er hann var spurður er hann hélt fyrirlestur um næringafræði og hvernig best væri að undirbúa sig fyrir leik en að loknum fyrirlestrinum voru krökkunum færðir regnstakkar að gjöf merktum Knattspyrnuskóla Grétars Rafns. Fimm krökkum hefur verið boðið að taka þátt í svo kölluðum Grand Final skóla í Bolton ef þau sjá sér fært um að fara en þar koma saman krakkar frá svipuðum skólum og hér sem Bolton Akademían sér um. Rétt er að taka það fram að Grétar Rafn Steinsson var fyrirliði A-lið Íslands á móti Makedóníu síðastliðinn miðvikudag, ekki er siglo.is kunnugt um hvort fleiri Siglfirðingar hafi náð þeim heiðri áður. Framtak Grétars Rafn með skólanum er frábært framtak og mikil lyftistöng fyrir knattspyrnuna hér í Fjallabyggð gaman var líka að sjá að tæplega helmingur krakkanna sem sóttu skólann búa ekki hér og er þetta því hrein og klár viðbót við ferðamennskunna hér á Siglufirði.
Myndir frá skólanum HÉR

Grétar Rafn og þjálfarar við skólann.

Grétar Rafn ásamt þjálfurum skólans og þeim krökkum sem voru valin að þjálfurunum til að fara til Bolton í Grand Final skólann ef þau kjósa það.

Athugasemdir