Knattspyrnuskóli Grétars Rafns

Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Steinssonar var settur í morgun suður á Hóli. Fjölmennt var, en 130 hressir  krakkar

Fréttir

Knattspyrnuskóli Grétars Rafns

Lauga, Gulli og þjálfarar frá knattspyrnuakademíu Bolton
Lauga, Gulli og þjálfarar frá knattspyrnuakademíu Bolton
Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Steinssonar var settur í morgun suður á Hóli. Fjölmennt var, en 130 hressir  krakkar víðsvegar af landinu eru skráðir á námskeiðið.
Þetta er fótboltaskóli, sem Grétar Rafn leikmaður Bolton Wanderers og íslenska landsliðsins, hefur sett á stofn og er markmið skólans þjálfun fótboltakrakka á landsbyggðinni.
Grétar Rafn Steinsson er gott dæmi um knattspyrnumann, sem með dugnaði og sjálfsaga hefur náð þeim frábæra árangri að spila í sterkustu knattspyrnudeild í heimi, ensku úrvalsdeildinni. Hann ólst upp á Siglufirði og spilaði með KS í yngstu aldursflokkunum, en gekk til liðs við ÍA í þriðja flokki. Af Skaganum lá leið hans árið 2005 til Young Boys í Sviss, en síðar á árinu keypti hollenska félagið AZ Alkmaar hann. Grétar Rafn hefur leikið með Bolton Wanders frá janúar 2008 til dagsins í dag. 
Grétar Rafn hefur fengið til liðs við sig margreynda unglingaþjálfara frá Knattspyrnuakademíu  Bolton. Þjálfararnir eru fimm talsins og hafa farið á vegum Bolton Akademíunnar út um allan heim. Grétar mun að sjálfsögðu leggja sitt lóð á vogarskálarnar, en hann er að spila landsleik með Íslenska landsliðinu næstkomandi miðvikudag gegn Makedóníu, og kemur til Siglufjarðar seinni hluta vikunnar.
Krakkarnir fá góða innsýn í þjálfun atvinnumanna og hvað þarft til þess að ná alla leið í atvinnumennsku í knattspyrnu. Námskeiðið stendur yfir í viku frá 8.-12. Júní 2009, frá klukkan 10-15. Boðið verður upp á heitan mat í hádeginu.  Fleiri myndir HÉR









Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst