Kosningakaffi og vökur flokkana á Siglufirði

Kosningakaffi og vökur flokkana á Siglufirði Það þarf vart að minna Siglfirðinga á að í dag, laugardaginn 25. apríl, er dagur kosninga. Dagurinn er nú

Fréttir

Kosningakaffi og vökur flokkana á Siglufirði

Alþingishúsið
Alþingishúsið
Það þarf vart að minna Siglfirðinga á að í dag, laugardaginn 25. apríl, er dagur kosninga. Dagurinn er nú þegar orðinn merkilegur í sögu Íslenskra stjórnmála þar sem til hans var kallað með skömmum fyrirvara. En þrátt fyrir að skammur sé fyrirvarinn þá hefur öllum stjórnmálaflokkunum tekist að skipuleggja kosningakaffi. Má þá reikna með, eins og hefð er fyrir, að fólk flykkist á kosningaskrifstofur flokka sinna.
 Verður dagskráin sem hér segir:
Sjálstæðisflokkurinn

Kosningakaffi á kjördag verður sem hér segir.
Siglufirði í Allanum við Aðalgötu frá kl. 14:00 til 18:00.
Ólafsfirði í Tjarnarborg frá kl. 14:00 til 18:00.

Samfylkingin

Kosningakaffi verður á skrifstofunni Aðalgötu 7 á kjördag frá kl. 14:30 til 17:30.
Akstur á kjördag í síma 467-1208 á Siglufirði og 840-9330 á Ólafsfirði. Kosningavaka verður á skrifstofunni frá kl. 22:00.

Framsóknarflokkurinn

Kosningarkaffi á kjördag á Torginu frá kl. 15  til 18 og Slysavarnarhúsinu á Ólafsfirði frá kl. 15 til 18. Kosningarvaka með Birkir Jóni á skrifstofunni á Siglufirði og hefst hún kl. 22:00.

Vinstri Grænir

Kosningakaffi verður í Þormóðsbúð á Siglufirði á kjördag frá kl. 14:00 til 17:00.
Steingrímur, Björn Valur og Bjarkey koma kl: 11:15.

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst