Kynningarfundur vegna breytinga á sorphirðu
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 20.10.2009 | 07:00 | | Lestrar 505 | Athugasemdir ( )
Íslenska Gámafélagið hélt kynningarfund í gærkvöldi á Allanum vegna fyrirhugaðra breytinga á sorphirðu. Birgir Á. Kristjánsson framkvæmdastjóri umhverfissviðs kynnti starfssemi Íslenska Gámafélagsins, sögu og helstu vandamál sem geta komið upp við flokkun sorps.
Í megin dráttum er sorpið flokkað í þrjár tunnur , gráa tunnu en í hana fer almennt sorp, brúna tunnu en í hana fer lífrænn úrgangur og græna tunnu en í hana fer endurvinnanlegur úrgangur. Gráa og græna tunnan verða losaðar mánaðarlega en brúna tunnan oftar. Birgir sagði að það verði gefin út bæklingur fyrir Fjallabyggð sem verði dreift inná hvert heimili og einnig myndu starfsmenn frá félaginu fara í hvert hús í byrjun nóvember til að bjóða fram aðstoð við framkvæmdina.
Birgir Á. Kristjánsson

Á heimasíðu flokkarinn.is er einnig að finna allar upplýsingar um flokkun á sorpi og ýmislegt varðandi lausnir varðandi sorpmál. Til gamans má geta að 30-35% af sorpi heimilisins er lífrænn úrgangur sem hægt er að endurvinna og við endurvinnslu á einni áldós sparast rafmagn sem dugar fyrir sjónvarp í 3 klukkustundir. Vel var sótt á fundinn af íbúum, margar spurningar spurðar og svaraði Birgir þeim skilmerkilega en ljóst er að sumir verða að fara í framkvæmdir til að koma tunnunum þremur fyrir.

Athugasemdir