List án Landamæra
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 09.05.2009 | 20:00 | | Lestrar 313 | Athugasemdir ( )
Nú stendur yfir í Ráðhúsi Siglufjarðar listahátíðin,
List án landamæra.
Síðasti sýningardagur er á morgun sunnudag frá kl. 13-17.
List án landamæra sem nú er haldið í sjötta sinn leitast við að koma list og
sjónarmiðum á framfæri sem passa ekki beinlínis inn í hinn hefðbundna listaheim.
Listamenn vinna samvinnuverkefni með öðrum listamönnum eða áhugafólki með
ýmis konar fatlanir. Fólkið vinnur saman á jafnréttisgrundvelli og er samstarfið
fyrir öllu.
Sýnendur frá Ólafsfirði:
Myndlistarkonan Garún, Guðrún Þórisdóttir, leirlistakonan Hófý, Hólmfríður Arngrímsdóttir
og Kristjana Sveinsdóttir myndlistarmaður.
Sýnendur frá Siglufirði:
Starfsmenn Iðju-Dagvistar, handverkskonur í Kvennasmiðjunni,
félagar í Sjálfsbjörgu, handverkskonur í Galleríi Sigló, listakonan Abbý, Arnfinna Björnsdóttir
Í stjórn hátíðarinnar eru aðilar frá Landssamtökum Þroskahjálpar, Hinu húsinu,
Fjölmennt – Fullorðinsfræðslu fatlaðra, Átaki – Félagi fólks með þroskahömlun og
Öryrkjabandalagi Íslands.
Myndir HÉR

Athugasemdir