Ljósmyndanámskeið

Ljósmyndanámskeið Grunnnámskeiðinu fyrir notendur stafrænna spegilmyndavéla lauk í gærkvöld. Sveinn Hjartarson ljósmyndari var leiðbeinandi á námskeiðinu

Fréttir

Ljósmyndanámskeið

Upprennandi ljósmyndari
Upprennandi ljósmyndari
Grunnnámskeiðinu fyrir notendur stafrænna spegilmyndavéla lauk í gærkvöld. Sveinn Hjartarson ljósmyndari var leiðbeinandi á námskeiðinu og fórst honum það vel úr hendi enda mikill listamaður. Farið var í grunnatriðin í ljósmyndatækni samanber ljósop, hraða, ISO, WB, RAW skrá, dýptarskerpa, ljósmæling og fleira.
Nemendur á námskeiðinu voru á öllum aldri sumir vanir myndasmiðir en aðrir ekki, allir höfðu gagn og gaman af. Flestir starfsmenn siglo.is voru á námskeiðinu og vonandi mun það sjást á myndum á síðunni í framtíðinni. Þetta var fyrsta námskeiðið sem haldið er í húsakynnum Rauðku og stefnt er á fleiri námskeið, einnig geta aðilar tekið salinn á leigu til námskeiðshalds eða fyrirlestra.











Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst