Meistaraflokkur KS/Leiftur í æfingaferð 2009

Meistaraflokkur KS/Leiftur í æfingaferð 2009 Meistaraflokkur KS/Leiftur var í æfingaferð um síðustu helgi.Lagt var að stað á miðvikudaginn 29 apríl og

Fréttir

Meistaraflokkur KS/Leiftur í æfingaferð 2009

Æfingahópurinn
Æfingahópurinn
Meistaraflokkur KS/Leiftur var í æfingaferð um síðustu helgi.Lagt var að stað á miðvikudaginn 29 apríl og komið heim aftur á sunnudagskvöldið eftir góða ferð. Liðið fékk að nota aðstöðu Íslandsmeistara FH í Risanum í Hafnarfirði. Liðið spilaði 2 æfingaleiki í ferðinni.
Á fimmtudeginum var spilað við Víðir í Garði og endaði sá leikur með jafntefli 0-0 þessi leikur var spilaður á Garðskagavelli. Á sunnudeginum var spilað við Njarðvík á Njarvíkurvelli og lauk þeim leik með sigri KS/Leiftur 2-0. Auk þess að spila þessa leiki var stíft æfingaprógram og voru flestar æfingarnar á morgnana frá 9-12 og voru strákarnir frekar syfjaðir í morgunmatnum en þjálfarinn Ragnar Grimmi Hauksson náði því fljótt úr þeim.Ýmislegt var gert til gamans  í ferðinni t.d farið í keilu þar sem yngri strákarninr höfðu sigur, kvöldvaka með heima tilbúnum skemmtiatriðum, pókerkvöld, farið í sund og fl fl. Þessi ferð lukkaðist vel í alla staði og stóðu strákarnir okkar sig vel og voru Fjallabyggð til sóma. Takk strákar fyrir skemmtilega ferð þið eruð frábærir.

Formaður meistaraflokksráðs.

Birgir Ingimarsson

Myndir HÉR


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst