Miðbær Siglufjarðar - opinn fundur var á Allanum
Sparisjóður Siglufjarðar ásamt Rauðku og félögum buðu bæjarbúum í kaffi og kleinur á opnum kynningar- og umræðufundi. Alls mættu um 120 manns til að hlýða á kynningar og tillögur framsetningarmanna. Ólafur Jónsson Sparisjóðsstjóri fór í gegnum feril Rauðku ehf og aðkomu Sparisjóðsins að verkefnunum.
Helsta málefni fundarins var litgreining miðbæjarins sem Elín Þorsteinsdóttir framsetti og sýndi hvernig ásýnd hans getur breyst þegar margir leggja hönd á plóg. Einnig kynnti Hörður Júlíusson bæjarbúum og gestum þau verkefni sem eru í vændum hjá fyrirtækinu og það sem er verið að vinna í og er búið. SKSigló kynnti hvað er á döfinni og framgang vefsins siglo.is og Finnur Yngvi kynnti í fjarveru Egils Rögnvaldsonar starfsemi Valló ehf um blómstrandi rekstur skíðasvæðisins.
Að lokum var opnað fyrir umræður og spurningar gesta.
Rauðka
Athugasemdir