Mikill ávinningur af skútukeppni
www.ruv.is | Fréttir á landsvísu | 17.11.2009 | 09:11 | | Lestrar 574 | Athugasemdir ( )
Þórir Kristinn Þórisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, vísar því á bug að skútusiglingakeppnin Iceland Midnight Sun Race hafi ekki í för með sér mikinn ávinning fyrir sveitarfélagið. Eins og kom fram í fréttum fyrir helgi, hafa bæjarfulltrúar H-lista í minnihluta bæjarstjórnar Fjallabyggðar, óskað eftir ítarlegum upplýsingum um hversu mikið skútusiglingakeppnin hafi kostað sveitarfélagið.
Þeir telja að mun meiri fjármunum hafi verið varið í verkefnið en staðið hafi til í upphafi, og efast um ávinning verkefnisins fyrir samfélagið. Þórir Kristinn, bæjarstjóri Fjallabyggðar, segir kostnað sveitarfélagsins vegna keppninnar vera um tíu milljónir króna.
frettir@ruv.is
Hér er hægt að hlusta á viðtal við bæjarstjóran í Fjallabyggð
http://dagskra.ruv.is/akureyri/4459911/2009/11/16/2

Athugasemdir