Mikkahús, Gústahús eða Binnahús?
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 01.07.2009 | 07:00 | | Lestrar 694 | Athugasemdir ( )
Brynjar Harðarson vinnur hörðum höndum að því að gera húsið sitt klárt. Binni eins og hann er jafnan kallaður hefur verið að gera húsið upp að innan og stefnir að því að ná að sofa í því fyrir Verslunarmannahelgina. Húsið er allt hið glæsilegasta og notar Binni nú blíðunna til að byggja sólpall sunnan og vestan við húsið.
Binni segir ekki alla sammála um hvaða nafn eigi að vera á húsinu svo hann kallar það bara Binnahús.

Ennþá eru tíu fingur og tíu tær

Hann er fjallmyndarlegur segir mamma hans.
Binni segir ekki alla sammála um hvaða nafn eigi að vera á húsinu svo hann kallar það bara Binnahús.
Ennþá eru tíu fingur og tíu tær
Hann er fjallmyndarlegur segir mamma hans.
Athugasemdir