Myndir af áhöfn þýsku flugvélarinnar
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 04.11.2009 | 18:00 | | Lestrar 446 | Athugasemdir ( )
Skúli Jón Sigurðarson hefur sent Sigló.is myndir af áhöfn þýsku flugvélarinnar sem fórst við Grímsey sumarið 1943, en líklegt þykir að hluturinn sem fannst þann 17. október 2009 sé úr þeirri vél.
Myndirnar birtust í bókinni Ísland í hers höndum eftir Þór Whitehead.

Þessir Þýsku flugliðar háður harða loftorrustu út af Grímsey við tvær Lighting-vélar frá Keflavík, sem flugu frá Melgerðismelur á fögrum ágústdegi 1943. Gímseyingar horfðu agndofa á Condor-Vélina nauðlenda alelda á hafinu, en áhöfnin braust með undraverðum hætti um borð í gúmmíbát. Þýski flugstórinn í þessari síðustu loftorustu styrjaldarinnar við Ísland var Karl Holtrup frá Düsseldorf, sem hér situr (þriðji f.h.) með félögum sínum.

Ökklabrotinn fangi úr lofti, Richer loftskeytamaður. Fangarnir undruðust góðvild Bandamanna og urðu aldavinir flugmannanna sem skutu þá niður við heimskautsbaug.
Tengdar fréttrir 1, 2, 3 & 4

Athugasemdir