Myndlistarsýning í Ráðhúsinu
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 16.11.2009 | 08:48 | | Lestrar 366 | Athugasemdir ( )
Laugardaginn 14. nóvember var stórglæsileg myndlistarsýning í Ráðhúsinu. Listamennirnir voru börn frá leikskólanum Leikskálum. Það er alveg greinilegt að mörg þeirra eiga framtíðina fyrir sér í listinni. Foreldrafélag Leikskála stóð fyrir sýningunni og buðu foreldrar upp á heimabakað bakkelsi og rjúkandi kaffi með.
Allur ágóði af sýningunni rann til skemmtanahalds handa börnunum. Fleiri myndir HÉR



Allur ágóði af sýningunni rann til skemmtanahalds handa börnunum. Fleiri myndir HÉR



Athugasemdir