Nóg framundan á Allanum

Nóg framundan á Allanum Það var nóg að gera hjá starfmönnum Allans er siglo.is leit þar inn í dag. Ólafía sagði að undirbúningnum væri að ljúka og nú

Fréttir

Nóg framundan á Allanum

Ólafía og Viktoría.
Ólafía og Viktoría.
Það var nóg að gera hjá starfmönnum Allans er siglo.is leit þar inn í dag. Ólafía sagði að undirbúningnum væri að ljúka og nú þegar væri törnin hafin, Haraldur   ( kartöflubóndi) eiginmaður hennar ætlaði að bjóða uppá hollan og góðan verslunarmannahelgar mat.
Hver stórhljómsveitin á fætur annari mun leika um helgina og byrjum við á föstudagskvöldinu en þá munu Tóti og Danni hita upp fyrir hljómsveitina Buff. Á laugardagskvöldið mun hljómsveitin Evanger hita upp fyrir hljómsveitina Papa. Á sunnudeginum munu Hara systur vera með tónleika kl:16 og svo um kvöldið munu Stúlli og Dúi sjá um fjörið eins og þeim er einum lagið. Ólafía gaf sér samt tíma fyrir smá myndatöku með Ömmubarninu en Haraldur náðist ekki á mynd enda allt á fullu hjá honum.

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst