Nóg hægt að gera í dag

Nóg hægt að gera í dag Það er óhætt að segja að það sé nóg hægt að gera á Siglufirði í dag. Golfmót er haldið að Hóli kl. 13:00. Á Blöndalslóð eru

Fréttir

Nóg hægt að gera í dag

Harpa Dögg Kjartansdóttir. harpakjartans@gmail.com
Harpa Dögg Kjartansdóttir. harpakjartans@gmail.com
Það er óhætt að segja að það sé nóg hægt að gera á Siglufirði í dag. Golfmót er haldið að Hóli kl. 13:00. Á Blöndalslóð eru leiktæki frá Sprell frá kl. 13:00. Í Ráðhúsinu er áhugaverð samsýning myndlistamanna sem hafa verið að byggja upp myndlistastefnu sína en sýningin opna kl. 13:00.
Ljósmyndasafn Siglufjarðar verður með opið í Ísafoldarhúsi frá kl. 14:00 til 16:00. Á Ráðhústorginu verður fjölskylduleikverkið Pína pokastelpa kl. 14:00. Sögusýning Síldarminjasafnins verður farin kl. 15:00 og 17:00 á bátnum Húna II frá bryggjunni við Síldarminjasafnið. Dorgveiðikeppni barna verður kl. 15:00 á Óskarsbryggju. Tónleikar með Hara systrum eru í Allanum kl. 16:00. Á Ráðhústorginu kl. 17:00 verður söngvakeppni barna, Tónlistarskóli Siglufjarðar verður með atriði og verðlaunaafhending fyrir dorgveiðikeppnina og söngvakeppnina. Síldarsöltun verður við Síldarminjasafnið kl. 16:30. Fjörið á Ráðhústorginu hefst svo kl. 21:00. Af þessu má sjá að allir ættu að finna sér eitthvað við hæfi.








Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst