Norðurlandsmót í boccia

Norðurlandsmót í boccia Norðurlandsmót í boccia var haldið á Akureyri síðastliðin laugardag. 16 keppendur fóru héðan frá Siglufirði og stóðu sig allir með

Fréttir

Norðurlandsmót í boccia

Norðurlandsmót í boccia var haldið á Akureyri síðastliðin laugardag. 16 keppendur fóru héðan frá Siglufirði og stóðu sig allir með sóma. Að venju sótti okkar fólk fjölda verðlauna og má þar nefna Hrafnhildi og Önnu sem komu heim með silfurverðlaun.
Í opna flokknum var sannkölluð vinafólksbarátta þar sem Berta og Guðný höfnuðu sem Norðurlandsmeistarar en makar þeirra Sveinn og Steingrímur náðu silfursætinu og greinilega ekki mjög sáttir eftir myndinni að dæma. Lokahóf var haldið að loknu móti og dansað fram eftir kvöldi.






Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst