Ónúmeraður passíusálmur
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 28.09.2009 | 10:00 | | Lestrar 515 | Athugasemdir ( )
Það var í vor að siglo.is heimsótti fiskbúðinna á laugardagsmorgni og þáði kaffibolla, þar voru fyrir kappar þrír sem sátu sem fastast og drukku kaffi. Listamaðurinn Sigurður Helgi Sigurðsson greip þá tækifærið og orti um heimsókn siglo.is í fiski búðina.
Afraksturinn má sjá hér á myndinni og hér að neðan. Hér er linkur á fréttina frá því í vor.
Ónúmeraður passíusálmur.
Af heimsókn hljómkviðu nokkurrar, og tveggja postula til fisksalans, kaffiþambi þeirra, og tóbaksnautn.
Tilurð vorkunnsemi við fisksalann.
Gengu í húsið þar gaurar þrír
Geistlegir drukku þeir elexír
Allskonar lit bar þess elsta skegg
Eymdarlegt var hans fyrsta hnegg
Upp tók svo pontu og öllum gaf
Einnig þeim sem að klýfur haf
Á fjallið mikla hann falaðist
Eftir fari að að hitta Jesú Krist
Bókhaldarinn svo býsna stór
Bældur að vanda hjá sér fór
Camel þá svældi og saup af krús
Signdi á brjóstið og bauð svo dús
Uppreigði og teigði sig allan þar
Item svo horfði á myndirnar
Eins og að venju allt hans fas
Elskar í laumi röfl og þras
Eins er hann Pétur og postulinn
Par ekki feiminn við stólinn sinn
Þiggur af Páli svo pínu korn
Plantar í nös við borðsins horn
Lætur sig dreyma um rækjumok
Rífandi gróða og stútfullt kok
Glottandi situr garpurinn þar
Gleiður til fóta hann af þeim bar.
Fisksalinn ljúfur þeim fagnandi
Fór bak vil þilið samt ragnandi
Reif þar í hár sitt og reyndi að þegja
Raupandi allir lopann sinn teygja
Brosandi hellir í bollann sinn
Blessaður elsku drengurinn
Ekkert raskar hans innstu ró
Almættið gaf honum þessa stó.
Svipmiklir eru þeir elskurnar
Einnig svo góna á píkurnar
Lafandi separ þá lifna við
Líkt og gerist með stóðhrossið
Tárið það, klárast og kornið líka
Kemur þá órói í hölda slíka
Vaxandi er þeim sól í sinni
Sýnist því mál að hér með linni.
10. og 11.3 2009 Sigurður Helgi Sigurðsson.

Afraksturinn má sjá hér á myndinni og hér að neðan. Hér er linkur á fréttina frá því í vor.
Ónúmeraður passíusálmur.
Af heimsókn hljómkviðu nokkurrar, og tveggja postula til fisksalans, kaffiþambi þeirra, og tóbaksnautn.
Tilurð vorkunnsemi við fisksalann.
Gengu í húsið þar gaurar þrír
Geistlegir drukku þeir elexír
Allskonar lit bar þess elsta skegg
Eymdarlegt var hans fyrsta hnegg
Upp tók svo pontu og öllum gaf
Einnig þeim sem að klýfur haf
Á fjallið mikla hann falaðist
Eftir fari að að hitta Jesú Krist
Bókhaldarinn svo býsna stór
Bældur að vanda hjá sér fór
Camel þá svældi og saup af krús
Signdi á brjóstið og bauð svo dús
Uppreigði og teigði sig allan þar
Item svo horfði á myndirnar
Eins og að venju allt hans fas
Elskar í laumi röfl og þras
Eins er hann Pétur og postulinn
Par ekki feiminn við stólinn sinn
Þiggur af Páli svo pínu korn
Plantar í nös við borðsins horn
Lætur sig dreyma um rækjumok
Rífandi gróða og stútfullt kok
Glottandi situr garpurinn þar
Gleiður til fóta hann af þeim bar.
Fisksalinn ljúfur þeim fagnandi
Fór bak vil þilið samt ragnandi
Reif þar í hár sitt og reyndi að þegja
Raupandi allir lopann sinn teygja
Brosandi hellir í bollann sinn
Blessaður elsku drengurinn
Ekkert raskar hans innstu ró
Almættið gaf honum þessa stó.
Svipmiklir eru þeir elskurnar
Einnig svo góna á píkurnar
Lafandi separ þá lifna við
Líkt og gerist með stóðhrossið
Tárið það, klárast og kornið líka
Kemur þá órói í hölda slíka
Vaxandi er þeim sól í sinni
Sýnist því mál að hér með linni.
10. og 11.3 2009 Sigurður Helgi Sigurðsson.

Athugasemdir