Primex ehf. er að gera góða hluti.
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 24.06.2009 | 07:00 | | Lestrar 816 | Athugasemdir ( )
Primex ehf. er fyrirtæki hér í bæ sem er að framleiða áhugaverða afurðir sem ekki hefur farið hátt um. Okkur hér á siglo.is finnst þetta vera mjög áhugavert og munum fjalla um LipoSan Ultra að þessu sinni og fleiri afurðir þeirra á næstunni. Sigríður Vigfúsdóttir markaðsstjóri leiðir okkur í gegnum sögu Primex ehf.:
Primex ehf er fyrirtæki í sjávarlíftækni sem hefur sérhæft sig í framleiðslu á einstaklega tæru kítini og kítósani. Markmið fyrirtækisins er að kynna og markaðssetja vísindalega áreiðanlegt og nýstárlegt efni til nota í fæðubótarefni, snyrtivörur, matvæli og sem hjálparefni í lyfja- og lækningavörur. Hráefnið er eingöngu skel af ferskri kaldsjávarrækju (Pandalus borealis) sem unnin er á Norðurlandi. Verksmiðja og skrifstofur fyrirtækisins eru á Siglufirði, þar sem starfa um 15 manns. Stærstu markaðir eru í Evrópu og Bandaríkjunum.
Árið 2004 keypti Primex einkaleyfi á framleiðslu og sölu á LipoSan Ultra sem þá var þegar til á Ameríkumarkaði. Frá 2004 höfum við verið að markaðsetja LipoSan í Evrópu með mjög góðum árangri, sérstaklega í Þýskalandi, Hollandi, Swiss og á Spáni. Við höfðum í þó nokkurn tíma verið að gæla við að setja LipoSan á markað hér heima, enda varan alíslensk. Það var svo í byrjun júní að við gerðum samning við Artasan um dreifingu og mun LipoSan verða til sölu í Lyfju, Hagkaup, Krónunni auk margra annara verslana. Auk þess þá vonumst við til að bæði túristar og innfæddir á Siglufirði geti nálgast LipoSan á sem flestum stöðum hér á Sigló.

LipoSan Ultra er vísindalega rannsakað sem öruggt og áhrifaríkt fæðubótarefni, það bindur fitu og vinnur gegn aukakílóum auk þess að
lækka slæmt kólesteról í blóðinu. Þetta eru trefjar sem hafa þann eiginleika að halda ristlinum hreinum og virkum.
Afurðir Primex ehf. eru m.a. markaðssettar undir vörumerkjunum:
LipoSan Ultra® sem fitubindi-og kólesteróllækkandi efni. Kítósan eru náttúrulegar trefjar sem hafa þann einstaka eiginleika að draga til sín fitu. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á getu efnisins til að lækka slæmt(LDL) kólesteról á meðan gott (HDL) kólesteról í blóðinu hækkar. LipoSan Ultra verður nú fáanlegt á Íslandi innan skamms.

Til að tryggja öryggi framleiðslunnar hefur Primex innleitt gæðakerfi sem
byggir á áhættugreiningu og mikilvægum eftirlitsþáttum (HACCP), rannsóknum
á hverri framleiðslulotu og fullum rekjanleika. Auk þess stendur nú yfir innleiðing á ISO 22000 sem tryggir enn betri gæði vörunnar.

Athugasemdir