Ríkisstyrkur til sveitarfélaga vegna aflasamdráttar 250 milljónir

Ríkisstyrkur til sveitarfélaga vegna aflasamdráttar 250 milljónir Fimm sveitarfélög fá helming peninganna Samgönguráðherra hefur ákveðið skiptingu 250

Fréttir

Ríkisstyrkur til sveitarfélaga vegna aflasamdráttar 250 milljónir

Fimm sveitarfélög fá helming peninganna sem ríkissjóður ætlar að nota til að styrkja sveitarfélög til að vega upp samdrátt í aflamarki þorsk
Fimm sveitarfélög fá helming peninganna sem ríkissjóður ætlar að nota til að styrkja sveitarfélög til að vega upp samdrátt í aflamarki þorsk

Fimm sveitarfélög fá helming peninganna

Samgönguráðherra hefur ákveðið skiptingu 250 milljónum króna ríkisstyrks til sveitarfélaga, vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks á árinu. Styrknum er ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga.

Fimm sveitarfélög fá nær helming fjármunanna eða 123 milljónir króna. Mest fær Grindavík eða alls 35 milljónir króna. Vestmannaeyjar fá 24,5 milljónir og Ísafjörður fær24 milljónir í sinn hlut. Þá fær Snæfellsnesbær 23 miljónir og Dalvíkurbyggð 15,5 milljónir.

Sé miðað við fjölda íbúa fær Grímsey mest í sinn hlut eða liðlega 45 þúsund krónur á íbúa og 4,7 milljónir í heild. Höfðahreppur fær 10,7 milljónir í heild eða rúmlega 20 þúsund á hvern íbúa.

Í frétt frá samgönguráðuneytinu segir að úthlutunin byggist á sambærilegum forsendum og á liðnu ári, sem er áhrif ákvörðunar um aflaniðurskurð á einstök sveitarfélög þar sem aflamark er skráð. Þó er að þessu sinni miðað við minnkun aflamarks eins og það var í hverju sveitarfélagi um sig þann 1. september 2007, en ekki meðaltal úthlutaðs aflamarks nokkur fiskveiðiár þar á undan eins og gert var fyrir ári. Ráðuneytið segir að með því sé betur mætt áhrifum af niðurskurði í aflamarki þorsks í hverju sveitarfélagi þar sem skoðuð er staða aflamarks við upphaf þess tíma er niðurskurðurinn tók gildi. Alls er 200 milljónum króna varið til þessa þáttar.

Þá er sú breyting gerð nú, að sérstakt tillit er tekið til breytinga sem átt hafa sér stað í lönduðum afla milli fiskveiðiáranna 2006-2007 og 2007-2008. Alls er 50 milljónum króna varið til þessa þáttar, en framlaginu er ætlað að mæta minnkandi umsvifum í starfsemi hafna vegna ákvörðunar um niðurskurð í aflamarki þorsks.

Við úthlutunina var tekið mið af því, að vægi ofangreindra þátta er misjafnt í atvinnustarfsemi einstakra sveitarfélaga. Ennfremur var ákveðið að hámarksúthlutun til einstakra sveitarfélaga yrði 35 milljónir króna. Markmið úthlutunarinnar er að framlag renni til þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir umtalsverðum áhrifum vegna hins tímabundna samdráttar í þorskafla.

Athugasemd www.siglo.is   Samgönguráðherra hefur greinilega hugsað hlýtt til Fjallabyggðar.....................


Athugasemdir

10.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst