sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 13.08.2009 | 07:00 | | Lestrar 533 |
Athugasemdir ()

Mikael með jötungímurnar. Ljósmynd Sigurður Ægisson
Sóknarprestur okkar Siglfirðinga séra Sigurður Ægisson átti forsíðumynd Morgunblaðsins síðastliðinn þriðjudag.
Sonur hans Mikael var þar í aðalhlutverki ásamt risasveppi sem þeir feðgar sáu á Leirhafnartorfunni á Melrakkasléttu. Þessi sveppur sem kallast jötungíma (Langermannia gigantea) og er af físisveppaætt getur myndað risavaxið aldin, sem stækkar feikihratt og getur framleitt 10 milljarða gróa. Þessir sveppir eru jafnframt stærstu sveppir sem vaxa á Íslandi og hefur jötungíma aðeins fundist á fjórum stöðum á Íslandi til þessa. Á Skáni í Svíþjóð fannst árið 1901 jötungíma sem var 60 cm í þvermál og vóg 14 kíló.
Athugasemdir