Risatónleikar í gærkvöldi

Risatónleikar í gærkvöldi Óhætt er að segja að í gærkvöldi hafi farið fram stórviðburður hér á Siglufirði er fjöldi hljómsveita fluttu tónlist sína á

Fréttir

Risatónleikar í gærkvöldi

Max
Max
Óhætt er að segja að í gærkvöldi hafi farið fram stórviðburður hér á Siglufirði er fjöldi hljómsveita fluttu tónlist sína á sviðinu við Ráðhúsið. Fyrstir á svið voru hljómsveitin Frankfurt, þarna á ferð eru ungt tónlistarfólk frá Sauðárkróki og eiga þau án efa framtíðina fyrir sér.
 Hljómsveitin Max var næst á svið og náðu drengirnir knáu að trylla lýðinn all verulega með öllu sínu fjöri og skemmtilegheitum og frábæri sviðsframkomu. All langt er síðan að þeir spiluðu síðast en það var engan vegin hægt að heyra það né sjá en að sögn Sveinns Hjartar hafa þeir þroskast mikið á síðustu fjórum árum. Og áfram hélt fjörið með hljómsveitinni Evanger, þarna eru á ferð þétt sveit hljóðfæraleikara með englaröddina í Danna P sér til stuðnings. Að lokum mættu hinir frábæru Papar á svið og ekki vantaði stuðið í sveitinni þeirri. Glæsileg tónlistaveisla allt kvöldið og sáttur siglo.is fór alsæll í svefnin snemma.

Myndir HÉR


Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst