Rithöfundur með rætur á Siglufirði

Rithöfundur með rætur á Siglufirði Fölsk nóta er ný bók sem fór strax í efsta sæti metsölulista Eymundsson yfir skáldsögur. Þetta er spennusaga sem hefur

Fréttir

Rithöfundur með rætur á Siglufirði

Mynd: Mbl.is
Mynd: Mbl.is
Fölsk nóta er ný bók sem fór strax í efsta sæti metsölulista Eymundsson yfir skáldsögur. Þetta er spennusaga sem hefur fengið þær umsagnir að hér kveði við nýjan tón, þetta sé spennandi ráðgáta og flott frumraun.
Í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag var viðtal við Ragnar Jónasson, höfund bókarinnar. Þar kemur fram að hann er barnabarn Guðrúnar Reykdal og Þ. Ragnars Jónassonar bæjargjaldkera og fræðimanns á Siglufirði. Ragnar segir í viðtalinu að honum finnist yndislegt að dvelja í húsi ömmu og afa á Siglufirði. “Maður situr í ró og friði, horfir út á fjörðinn á milli skrifta og skrifar síðan glæpasögur við þennan allt annað en glæpsamlega fjörð.”
Nánari upplýsingar um bókina og höfundinn: www.ragnarjonasson.com

Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst