Siglfirsk sjónvarpsstjarna

Siglfirsk sjónvarpsstjarna Þeir sem sáu framhaldsþáttinn Hamarinn á Ríkissjónvarpinu í síðasta mánuði muna eflaust eftir honum Jóni Lárussyni, átta ára

Fréttir

Siglfirsk sjónvarpsstjarna

Magnús Aron Sigurðsson
Magnús Aron Sigurðsson

Þeir sem sáu framhaldsþáttinn Hamarinn á Ríkissjónvarpinu í síðasta mánuði muna eflaust eftir honum Jóni Lárussyni, átta ára gömlum skyggnum strák sem lék veigamikið hlutverk í þáttunum.  Jón er leikinn af Magnúsi Aroni Sigurðssyni en hann er sonur Huldu Ingibjargar Magnúsdóttur og Sigurðar Páls Sigurðssonar. Foreldrar Huldu eru Guðrún Ólöf Pálsdóttir (Gunnóla) og Magnús Eiríksson.



Siglfirðingurinn Hulda Ingibjörg Magnúsdóttir

Maggi eins og hann er oftast kallaður er í sjöunda bekk í Seljaskóla, hann hefur fengið mjög góða dóma fyrir leik sinn í þáttunum. Maggi er búinn að fara á tvö leiklistarnámskeið og á einu slíku voru nokkrir strákar á námskeiðinu kallaðir í prufur fyrir Hamarinn, valið stóð að lokum á milli hans og annars stráks en Maggi hreppti hlutverkið að lokum. Það kom honum á óvart hvað hann lék stórt hlutverk og nú er hann smitaður af leiklistarbakteríunni eins og oft vill verða þegar fólk hefur fengið smjörþefinn af leiklistinni. Enda hefur leikhúslífið löngum heillað. Hann er ákveðinn í að fara í leiklistarnám í framtíðinni, enda ekki amalegt þegar sjálfur leiksjórinn hvetur hann til að velta þeim möguleika fyrir sér. En þrátt fyrir óbilandi áhuga á leiklist er Maggi fótboltastrákur af guðs náð og er fótboltinn númer 1, 2 & 3 hjá honum og spilar hann með Leikni.


Maggi, í bakgrunninum er málverk eftir Sigga Palla föður hans.

Reynir Lyngdal leikstóri Hamarsins sagði þetta um guttann í viðtali við Morgunblaðið.

„Hann er alveg brillíant. Við könnuðumst við hann, því pabbi hans vinnur stundum við kvikmyndir. Magnús var alveg á pari við aðra leikara í þáttunum og það vafðist heldur ekkert fyrir honum að leika skyggnan strák. Hann hefur einhvern eiginleika þessi strákur sem er eins og hann sé sjálfur skyggn. Það er eitthvað í augunum á honum frá náttúrunnar hendi“

Maggi vildi nú ekki kannast við að vera skyggn, en hann finnur stundum hlutina á sér og er næmur og sannspár.



Þættirnir voru teknir upp fyrir rúmu árið síðan í ágúst og september 2008. Maggi fékk borgað fyrir hvern dag sem hann mætti í tökur en hann fór átta sinnum austur fyrir fjall. Hann var sóttur á morgnana klukkan sjö og „skilað“ aftur eftir tökur. Eftir lengstu tökurnar var hann að koma heim um klukkan eitt eftir miðnætti. Maggi las handritið áður en tökur byrjuðu en þurfti svo að læra textann fyrir hverja töku og auðvitað lifa sig inn í persónuna sem hann lék. Leikstjórinn Reynir Lyngdal var mjög hjálplegur og gaf honum góð ráð sem og Garún aðstoðarleikstjóri.

Það gengur ekki alltaf þrautarlaust fyrir sig að láta allt gang upp í tökunum, Í eitt skiptið þurfti að taka atriði 22 sinnum, en það var atriðið þegar hann var að borða morgunmat og sagði við stelpuna sem leikur systur hans „þetta verður allt í lagi ef hann er ekki í stígvélum“. Stelpan horfði svo skringilega á Magga að hann fór alltaf að hlæja, en að meðaltali þurfti um sex tökur fyrir hvert atriði.

Bekkjarfélagar Magga voru mjög ánægðir með vin sinn og nota frasana úr þáttunum óspart, svo sem „er strákurinn með þér“  og „passaðu þig“ , eins hafa nokkrir krakkar beðið hann um eiginhandaráritun.

Björn Hlynur Haraldsson og Dóra Jóhannsdóttir fara með aðalhlutverkin í Hamrinum. Helstu aðrir leikarar eru auk Magga,  Hilmar Jónsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, María Ellingsen, Herdís Þorvaldsdóttir, Arnmundur Ernst Bachmann, Hera Hilmarsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Harpa Arnarsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason.

Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifaði handritið að Hamrinum og framleiðandi er Snorri Þórisson fyrir Pegasus. Heildarkostnaður við framleiðsluna er 157 milljónir króna og hafa þeir þegar verið seldir til sjónvarpsstöðva á Norðurlöndunum. EBU, Evrópusamtök sjónvarpsstöðva, hafa einnig tekið að sér að selja þættina á alþjóðlegum vettvangi og verða þeir meðal helstu verkefna þeirra á MIPCOM sölumarkaðinum sem fram fer í Cannes í október.



Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst