Siglunes hf. startar fiskvinnslu

Siglunes hf. startar fiskvinnslu Gunnlaugur Oddsson rekur öfluga úgerð og nú síðast hófst rekstur á bolfiskvinnslu hér á Siglufirði. Gunni Odds eins og

Fréttir

Siglunes hf. startar fiskvinnslu

Framkvæmdamaðurinn Gunnlaugur Oddsson.
Framkvæmdamaðurinn Gunnlaugur Oddsson.
Gunnlaugur Oddsson rekur öfluga úgerð og nú síðast hófst rekstur á bolfiskvinnslu hér á Siglufirði. Gunni Odds eins og hann er jafnan kallaður byrjaði á sjó sex ára og er enn að en fyrir um tveimur árum kom hann í land til að sinna útgerðinni og ýmsu fleiru sem hann er með puttana í.
Fyrirtæki hans er blómlegt enda vinna að jafnaði 30-35 manns hjá Siglunesi hf. allt frá beitningu til vinnslu. Afurðirnar eru flakaðar, snyrtar og pakkað í frauðkassa sem sendir eru til Bretlands ýmist með flugi eða skipum og segja má að fyrirtækið vinni frá A-Ö í fiskvinnslu. Unnið er að því að finna fleiri markaðssvæði að sögn Gunna Odds. Fiskvinnslan er góð viðbót við atvinnulífið hér á Siglufirði og óskum við Siglunesi hf. til hamingju með glæsilegt fyrirtæki.

Fyrst þarf að beita til að fiska.



Annar er 2 tíma með balann en hinn 50 mín.



Sjómaður ræðir við beitningarmann.



Stór og öflugur kælir er hjá Siglunes hf. enda fiska bátar þess vel.



Góður Baader er nauðsinlegur uppá nýtinguna.



Öflugur hópur í snyrtingunni enda þarf að taka til hendinni fyrir þess konar vinnslu.



Birgðavörður og umbúðastjóri er knattspyrnumaðurinn Sissó.



Vanda þarf vel til verka er raðað er flökum í kassana fyrir útflutning.



Síminn hringir án afláts og Gunni talaði í það minnsta 3 tungumál á meðan á viðtalinu stóð.






Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst