Sigurlaug Hauksdóttir (Silla) á föstudegi

Sigurlaug Hauksdóttir (Silla) á föstudegi Það er ávalt létt yfir henni Sillu á hárgreiðslustofunni og ófáir kollarnir sem rúllað hafa þar í gegn, en

Fréttir

Sigurlaug Hauksdóttir (Silla) á föstudegi

Sigurlaug (Silla) Hauksdóttir
Sigurlaug (Silla) Hauksdóttir

Það er ávalt létt yfir henni Sillu á hárgreiðslustofunni og ófáir kollarnir sem rúllað hafa þar í gegn, en þegar Sigló.is bar að garði hafði Silla í nógu að snúast enda með kúnna í stólnum og annan á leiðinni.

Kunni fréttamaður Sigló.is því ekki við að biðja um rúningu í þetta skiptið og fór óklipptur í gegnum viðtalið. Það var þó tæplega að hann trúði því þegar að Silla tjáði honum að hún hefði verið með hárgreiðslustofu í um 30 ár enda leynir hún þá aldrinum ótrúlega vel. Á Fossveginum hefur hún verið síðastliðin 15 ár og má það sjá á fallegum heimkynnum og glæsilegum garði.

Hvað er framundan hjá þér nú þegar farið er að vora?
Það er garðurinn númer eitt, tvö og þrjú. Ég dunda mér þar með Hödda en við eigum dágott verk fyrir höndum í sumar þar sem lóðin virðist ætla að koma frekar illa undan snjó. Nú og svo er ég að fara í veiði í júní.

Ert þú lunkin með fluguna?
„Ég hafði nú aldrei verið neitt í veiði, þó að Höddi hafi verið að fara að veiða þá hef ég aldrei nennt að fara með, en síðast var bara engin undankomuleið. Allt í einu var ég bara komin út í á í vöðlum með flugustöng, en það tókst og ég fékk fisk ein og óstudd“.

 

Hvað gerir þú þér til dægrastyttingar annað en að veiða á flugu?
Fyrst og fremst eru það nú barnabörnin en nú á ég orðið fjögur, þau fá alltaf mestu athyglina. Svo er ég náttúrulega gamaldags og prjóna heilmikið en mér finnst líka gott að fara í ræktina og svo stunda ég að sjálfsögðu blakið, búin að stunda það í 20 ár (þarna fundum við út hvernig hún felur aldurinn). Þetta er náttúrulega fyrst og fremst félagsskapurinn en svo er alltaf gaman að keppa svolítið líka. Að sjálfsögðu stunda ég svo skíðin líka.

Það fer nú ekki á milli mála hjá manni þegar Silla er í fjallinu og varð fréttamaðurinn því að forvitnast hver sagan væri á bakvið skíðahúfuna „skunkinn“:
Það er svosem ekki mikil saga á bak við húfuna önnur en sú að ég keypti hana í Phoenix og að hún er hlý. Ég varð bara að kaupa mér húfu sem var öðruvísi og „funheit“, en það voru síðan barnabörnin sem bentu mér á að hún væri eins og skunkur en ég hafði nú aldrei spáð neitt í því.


 
Um leið og við þökkum Sillu kærlega fyrir og setjum viðtalið „óklippt“ á vefinn þá bendum við henni á að það er ekki lengur gamaldags að prjóna. Í dag þykir það bara „funheitt“.


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst