Silfur á Siglufirði
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 27.11.2009 | 12:00 | | Lestrar 469 | Athugasemdir ( )
Silfur er á leiðinni til Siglufjarðar til að spila á jólahlaðborði á laugardaginn. Þess má geta að trommari hljómsveitarinnar er Siglfirðingurinn Andri Hrannar, sonur Gunnu Árna og Adda Óla.
Kveðja, Silfur
Við birtum hér fyrir neðan viðtal sem tekið var við Andra Hrannar og er hýst hér á vefnum undir flipanum vefauglýsingar.
Gaman væri að vita hver þessi trúnaðarmaður er.
Enn á ný ætlar Silfur að skella sér norður og er stefnan tekin á Siglufjörð sem er einmitt heimabær Andra eins og komið hefur fram áður á þessum vettvangi. Trúnaðarmaður Silfur skellti sér í heimsókn til Andra til að taka stöðuna og sjá hvort ekki væri stemming fyrir þessari ferð. Andri sat með kaffibollann sinn og stúderaði trommuvídeó en gaf sér samt tíma í smá spjall. Aðspurður um hvort ekki yrði tekið vel á móti Silfur sagði hann "Jú klárlega, þar sem ég er orðinn heiðursborgari á Siglufirði er alltaf slegið upp veislu þegar ég kem heim" segir hann og bætir við "Veislan verður núna í Allanum og verður villabráðakvöld sem var sérvalið fyrir mig" En þess má geta að Siglfirðingar eru búnir að undirbúa heljarinnar veislu til heiðurs Andra og verður hlaðborð og skemmtun. "Og svo var Silfur beðið um að slá upp balli" bætir Andri við. En er ekki alltaf gaman að koma í gamla heima bæinn? "Jú auðvitað" svarar Andri og bætir við "Kannski er svolítið mikið að hafa alltaf lúðrasveit verkalýðsins til að spila við göngin þegar ég kem þar í gegn, en þau vilja þetta og ekki fer ég að skemma stemminguna með því að afþakka þetta" að því sögðu er Andri rokinn í að stúdera paradillur double strokes og fleira og ákveður trúnaðarmaðurinn að kveðja Andra .. en þess má geta að umboðsmaður Silfur var einnig viðstaddur þetta viðtal og er hæst ánægður með Andra sem hann segir vera prímusmótor Silfur.
Jóla, jóla, jóla, kveðja !

Athugasemdir