Sjóflugvél á Siglufirði
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 01.08.2009 | 07:00 | | Lestrar 573 | Athugasemdir ( )
Það er sennilega langt síðan að sjóflugvél lenti á Siglufirði. Arngrímur Jóhannsson flugstjóri lenti vél sinni de Havilland DHC-2 Beaver í innrihöfninni í gær og brá sér í kaffi hjá Valla í Harbor House og hélt síðan sína leið. Óhætt er að segja að þessi flugvél er glæsileg og sennilega hafa margir rifjað upp í huganum síldarárin.
Gaman var að þessu og kannski er þetta framtíðar ferðamennska hér á Siglufirði að sjóflugvélar stoppi hér með kaffiþyrsta flugfarþega.




Gaman var að þessu og kannski er þetta framtíðar ferðamennska hér á Siglufirði að sjóflugvélar stoppi hér með kaffiþyrsta flugfarþega.




Athugasemdir