Jómfrúarferð Soffíu, endurborinni !
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 17.10.2009 | 07:00 | | Lestrar 747 | Athugasemdir ( )
Ljósmyndari siglo.is varð vitni að fyrstu sjósetningu árabátsins sem smíðaður var í Slippnum á vegum Síldarminjasafnsins í sumar og sagt hefur verið frá á fréttavef Siglufjarðar, sksiglo.is
Þeir Örlygur safnstjóri og Skúli smiður ýttu úr vör eftir stutta sjóferðabæn eins og gömul hefð býður gagnvart nýjum báti: "Fleyið blessi og farmenn þess faðirinn góði og vísi".
Um leið var bátnum gefið nafnið Soffía.
Nokkur mótbyr mætti Soffíu í þessari fyrstu sjóferð, suðvestan snarpur vindur kom þó ekki í veg fyrir að bátnum væri róið rösklega, en verra gekk að hemja bátinn við bryggju þegar eiginkonur þeirra skipverja stigu um borð.
Alltaf þykir það gæfulegt að konurnar séu nærstaddar við fyrstu sjósetningu.
Seinna fór Björn Jónsson, gamall slippdrengur í prufutúr enda smíðin honum skyld.
Að endingu var Soffíu rennt inn í Bátahúsið þar sem hennar bíður lokafrágangur, málningarvinna og fleira.

Þeir voru býsna samhentir með áralagið.

Fast þeir í árar tóku

Og þarna eru róðrarkapparnir komnir með konur sínar um boðrð til prófa gripinn.

Valgeir Sigurðsson á Harbour house cafe kom með þessa mynd til sksiglo. Hann segir að hún sé af upprunalega bátnum, en báturinn sem sjósettur var í gær var einmitt hafður til hliðsjónar, við nýsmíðina.
Ekki vissi Valgeir nákvæmlega hvenær myndin var tekin, né hverjar konurnar um borð eru, en sennilega eru um 60 ár +/- síðan myndin var tekin. Siglunes í bakgrunni.
ök/sk
Viðbót: Samkvæmt ábendingu komna frá Þórði Jónssyni verkfræððingi, (m.ak.Hlyns Arndal) er líklegt að þarna séu á ferð frænkur hans, Þorbjörg og Sigríður Þórðardætur sem báðar eru látnar.
Einnig er líklegt að Anna Björnsdóttir sem býr á Siglufirði sé þarna, eða þá móðir hans.
Einnig gætu verið þarna Magnúsardætur, Baldvina og ????.
Það mun hafa verið mikið ungkvenna val á Siglunesi þarna upp úr 1940.

Athugasemdir