Sjósigl 20 ára
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 27.06.2009 | 13:00 | | Lestrar 519 | Athugasemdir ( )
Innanfélagsmót Sjósigl hófst í morgun stundvíslega kl. 6.00. Átta bátar
sigldu á miðin með keppendur sem eru 26 talsins, þar af 5 konur. Þrír nýliðar tóku þátt í mótinu að þessu sinni og eykst þátttaka með hverju árinu sem líður. Hætt verður að veiða klukkan tvö og þá fara bátarnir að týnast í land og lýkur mótinu með borðhaldi og verðlaunaafhendingu á Allanum fyrir skipsstjóra, keppendur, starfsmenn og maka þeirra. Veitt eru verðlaun fyrir aflahæsta skipsstjóra, aflahæstu veiðimenn og fyrir stærsta fisk mótsins. Aðalmót Sjósigl verður haldið 24.-25. júlí, en þá má búast við met þátttöku allstaðar af landinu. Venjan er að halda það mót um verslunarmannahelgina, en ákveðið var að færa mótið fram um eina viku að þessu sinni. Á þessu móti verður tímamótanna minnst á veglegan hátt. Formaður Sjósigl er nú Hörður Hjálmarsson. Fleiri myndir HÉR




Athugasemdir