Skipulags- og umhverfisnefnd hélt fund um hundahald í Siglufirði
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 30.10.2009 | 10:00 | | Lestrar 757 | Athugasemdir ( )
Almennur fundur var haldinn í Ráðhúsinu á Siglufirði í gærkvöldi um málefnið Hundalaus svæði í Siglufirði. Bæjarstjórinn Þórir Kristinn Þórisson setti fundinn og gaf Guðmundi Skarphéðinssyni formanni Skipulags- og umhverfisnefndar orðið. Guðmundur tjáði fundinum að fyrri tillögur hefðu verið settar útaf borðinu og hvatti til sátta við hundaeigendur sem voru mjög ósáttir við þær tillögur.
Marg oft kallaði Guðmundur eftir tillögum frá hundaeigendum og fékk nokkrar. Mariska van der Meer sagðist líta á hundahald sem útivist og benti á þjónustuvegirnir neðan við snjóflóðavarnargarðana væru góð hundasvæði.
Sigurður Friðriksson sagðist hafa viljað að hundaeigendur hefðu komið saman fyrir fundinn til að koma með sameiginlega tillögu fyrir nefndina og lagði til að svæði yrðu t. d. hundalaus yfir ákveðinn tíma yfir daginn einnig lagði hann til að fólk leitaði sér hjálpar við hundahræðslu og yrði kostnaður vegna þess greiddur af hundgjaldinu og taldi ekki að hundar væru lausir á Siglufirði.
Bæði Sveinn Þorsteins og Steingrímur Kristins mótmæltu þessum orðum Sigurðar um að fólk ætti að leita sér hjálpar enda fór hann yfir strikið að mati siglo.is og orð hans ekki til þess fallin að ná sátt við þá sem eru hræddir við hunda.
Atli Jónsson tók undir með Sigurði um hundalaus svæði á fyrirfram ákveðnum tímum.
Nanna Björk vill að hundaeigendur þrífi upp eftir hundana sína en er á móti hundlausum svæðum.
Steingrímur Kristins vill að allir hundar séu í ól nema á hundasvæðum og lagði til að gamli Fjarðarvegurinn yrði hundasvæði sem og tjaldsvæðið sunnan við Stóra-Bola þegar þar væru ekki tjaldbúar.
Sveinn Þorsteins vill að hundaeigendur aðlagi sig að bænum en ekki bæjarbúar að hundum og það hljóti að vera nóg pláss í firðinum.
Sigurður Friðriks taldi fjörðinn ekki nógu stóran og hann vill geta farið með sinn hund á ströndina eins og hann hefur gert í 19 ár.
Hreinn Júlíusson tæknifulltrúi sagði það lítið mál að stjórna hundasvæðum með merkingum og fannst undarlegt að hundaeigendur notuðu Hvanneyrarskálina ekki meira.
Margrét Eyjólfs og Sigurður Friðriks mæltu með því að krókar yrðu settir upp við þá staði sem þau sæki þjónustu eins og Samkaup, SPS, Bensínstöðina og Pósthúsið, það væri einungis við sundlaugina sem slíkur krókur væri og í öllum stórborgum heimsins væru slíkir krókar við slíkar þjónustur.
Ákveðið var í lok fundar að hundaeigendur kæmu með tillögur til Skipulags- og umhverfisnefndar til lausnar á málinu. Þess má geta að um 90 hundar er búsettir á Siglufirði í dag og brýnt að lausn finnist sem fyrst í þessu máli sem flestir geta sætt sig við.

Athugasemdir