SkjárEinn verður áskriftarsjónvarp

SkjárEinn verður áskriftarsjónvarp Frá miðjum nóvember næstkomandi verður sjónvarpsstöðin SkjárEinn að áskriftarstöð. SkjárEinn verður þá sendur út í

Fréttir

SkjárEinn verður áskriftarsjónvarp

Frá miðjum nóvember næstkomandi verður sjónvarpsstöðin SkjárEinn að áskriftarstöð. SkjárEinn verður þá sendur út í læstri dagskrá. Áskrift mun kosta 2.200 kr. á mánuði en ekki verður byrjað að innheimta áskriftargjöld fyrr en 1. desember.
Allir sem skrá sig fyrir áskrift munu hafa aðgang að stöðinni án endurgjalds frá miðjum nóvember til 1. desember. Hægt verður að kaupa áskrift bæði í gegnum Sjónvarp Símans og Digital Ísland hjá Vodafone þannig að ekki verður þörf á að skipta út þeim myndlyklum sem fyrir eru á heimilinu.
 
SkjárEinn, eins og fjölmörg önnur íslensk fyrirtæki, lenti í miklum erfiðleikum þegar efnahagskreppan skall á. Á tímabili leit út fyrir að stöðin myndi hætta útsendingum sínum.  Stuðningur þjóðarinnar og endursamningar við erlenda birgja Skjásins urðu til þess að sú varð ekki raunin.
 
„En því miður dugðu þessi úrræði ekki til þar sem auglýsingamarkaðurinn, eina tekjulind SkjásEins, hefur dregist mjög harkalega saman,” segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins „Við viljum bjóða SkjáEinn ókeypis en okkur er það einfaldlega ekki fært. Við skuldum áhorfendum, starfsmönnum og samstarfsaðilum að láta reyna á alla kosti sem geta fleytt okkur áfram. Við viljum ekki gefast ekki upp og því tökum við þetta skref,“  segir Sigríður.



Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst