Skrifstofa stéttarfélaganna flytur
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 23.04.2009 | 14:51 | | Lestrar 584 | Athugasemdir ( )
Skrifstofa stéttarfélaganna á Siglufirði var opnuð á nýjum stað í dag, í Eyrargötu 24. Gengið var frá Suðurgötu 10 með myndir af fyrrum leiðtogum siglfirskra launamanna að nýju skrifstofunni. Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju bauð fólk velkomið og þakkaði verktökum og hönnuðum fyrir frábært starf en verkefnið var víst ærið.
Einnig þakkaði hann íbúanum á efri hæðinni fyrir einstaka þolinmæði og afhenti síðan Margréti Jónsdóttur lyklana af húsnæðinu. Húsnæðið er vel tækjum búið í alla staði fyrir hverskonar fundi og veislur. Ólafur Kárason yfirsmiður tók líka til máls og lýsti verkefninu. Að ræðuhöldum loknum var boðið til glæsilegrar kaffi- og tertuveislu.
Myndir HÉR

Athugasemdir