Slippurinn í dag
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 31.07.2009 | 18:29 | | Lestrar 383 | Athugasemdir ( )
Kynning var á bátasmíðaverkefni Síldarminjasafnsins í Slippnum í dag. Gaman var að sjá handverksmennina beita verkfærum sínum og kunnáttu. Fjöldi fólks lagði leið sína í Slippinn að skoða og ræða við smiðina um bátinn en þetta mun vera fyrsti árabáturinn sem smíðaður er í Slippnum í hálfa öld.
Þess má geta að eitthvað af efninu í bátinn kemur frá Siglunesi að sögn Örlygs Kristfinnssonar.
Glæsilegt handverk á þessum bát.

Þessi kunnátta má ekki glatast.

Örlygur bendir á fjölina sem fannst á Siglunesi.

Hann er í ýmsum formum viðurinn sem notaður er í bátasmíðina.

Athugasemdir