Sparisjóðstjórinn Ólafur Jónsson
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 07.10.2009 | 10:00 | | Lestrar 905 | Athugasemdir ( )
Í ólgusjó bankahrunsins hefur Sparisjóðurinn Afl sem samanstendur af Sparisjóð Siglufjarðar og Sparisjóð Skagafjarðar aukið innlán gífurlega. Maðurinn í brúnni er 38 ára Siglfirðingur Ólafur Jónsson. Á undanförnum árum hefur sjóðurinn komið með fjölda starfa til Siglufjarðar og má þar nefna iðngjaldaskráninguna og nú síðast störf fyrir Momentum.
Siglo.is hefur lengi falast eftir viðtali við Ólaf en hann er ekki maður sviðsljósins en lét eftir siglo.is að svara nokkrum spurningum.
Hvað vinna margir hjá Sparisjóðnum og dótturfélögum
Þegar úthringiverið fyrir Momentum hefur verið tekið í notkun þá eru þetta rétt tæplega 50 manns.
Hvernig fór Sparisjóðurinn úr bankakreppunni
Sparisjóðurinn slapp auðvitað ekkert vel út úr kreppunni, við höfum þurft að leggja í varúð vegna útlána, en við áttum ekki hlutabréf, sem gerði það að verkum að sjóðurinn tapaði ekki á slíkum fjárfestingum. Útlán sjóðsins eru fyrst og fremst til einstaklinga, sjávarútvegs, bænda í Skagafirði og þjónustufyrirtækja.

Hafa innlán aukist og hve mikil þá
Innlán hafa aukist verulega, á einu ári hafa innlán aukist um 3 milljarða og standa nú í ríflega 8 milljörðum.
Hvernig lítur framtíðin út fyrir Sparisjóðinn
Framtíðin er mjög björt fyrir Siglufjörð og Skagafjörð, sem er aðalstarfssvæði sjóðsins. Auðvitað geta áframhaldandi neikvæðar horfur í efnahagsmálum skaðað sjóðinn enn frekar en komið er, eins og allar aðrar lánastofnanir. Þá geta breytingar á kvótakerfi með innköllun kvóta skaðað þau útlán sem við höfum í sjávarútvegi.

Hornsteinn í héraði verður einhver breyting þar á
Það eru engar hugmyndir um að breyting verði í þeim málum. Sjóðurinn mun áfram verða bakhjarl fyrirtækja og einstaklinga á svæðinu. Þá höfum við sýnt það í verki nú síðast með samningi við Momentum um flutning starfa til Siglufjarðar að við munum halda áfram þeirri stefnu að fjölga störfum og skapa atvinnu í heimabyggð.
Er hægt að reiða sig á að ríkið komi til með að skapa störf hér
Einkaaðilar sjá hag sínum borgið með því að flytja störf út á land. Ef hið opinbera er að fara í hagræðingu í rekstri, þá er ljóst að það er lítil hagræðing fólgin í því að fækka starfsfólki úti á landi. Í dag er hægt að vinna nánast öll störf hvar sem er á landinu óháð staðsetningu. Það sem landsbyggðin hefur umfram höfuðborgarsvæðið er stabilt vinnuafl og ódýrara húsnæði. Það er því einkennileg hagfræði að tala um hagræðingu þegar störfum er fækkað úti á landi, það væri frekar að flytja aukin verkefni út á land.

Hafa menn aðgang að fjármagni hjá Sparisjóðnum ef fara á að útí nýsköpun
Sparisjóðurinn mun hér eftir sem hingað til fjármagna spennandi verkefni, en hafa verður í huga að nauðsynlegt er að fyrirtæki hafi nægt eigið fé. Það verða ekki byggð upp fyrirtæki eingöngu á lánsfé.

Athugasemdir