Spirit of Adventure í Siglufjarðarhöfn
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 07.06.2009 | 12:00 | | Lestrar 630 | Athugasemdir ( )
Bæjarbúar tóku eflaust eftir því að skemmtiferðaskipið Spirit of Adventure kom til Siglufjarðar síðasta laugardag.
Skipið er ekki stórt á skemmtiskipamælikvarða, aðeins 9.570 brúttótonn, en það var byggt árið 1980 í Þýskalandi en endurgert árið 2006. Um borð í skipinu eru 350 farþegar frá Skotlandi og er þetta stærsta skip, sem komið hefur til Siglufjarðar. Farþegarnir settu svip á bæinn þar sem þeir röltu um og virtu fyrir sér Íslenskt samfélag í hnotskurn. Hópurinn heimsótti Síldarminjasafnið og var boðið upp á söltunarsýningu og söngatriði að ógleymdu brennivínssnafsi og síldarsmakki. Sumir gestanna stigu dansinn með síldarstúlkunum undir harmonikkuspili. Þeir gestir sem blaðamaður ræddi við voru hæstánægðir með söltunarsýninguna og einn hafði á orði að sýningin væri ein sú besta sem hann hefði séð. Eins vakti Bátahúsið, Grána og Síldarminjasafnið mikla hrifningu gesta, þeir voru dolfallnir yfir herlegheitunum og fannst merkilegt að jafn lítill staður væri með svona glæsilegt safn á sínum snærum. Skipið hélt úr höfn kl. 12:30 sama dag og það kom til hafnar og hafði því stutta viðdvöl í firðinum fagra.
Myndir HÉR

Athugasemdir