Stefnir í súper-ár í Fljótaá

Stefnir í súper-ár í Fljótaá Fljótaá í Fljótum er gersamlega pökkuð af fiski. VoV Stóð óvænt til boða að veiða í ánni tvær vaktir og það er óhætt að segja

Fréttir

Stefnir í súper-ár í Fljótaá

Ritstjóri með 77 cm hæng, 4,8 kg samkvæmt kvarðanum, en skráður 5 kg, sem sagt 10 pund og byggt á þreklegum vexti. Laxinn tók Black and Blue hálfs tommu keilu í Neðri Prestlænu en var landað miklu neðar eftir æsilegan eltingarleik niður hraðar flúðir og u
Ritstjóri með 77 cm hæng, 4,8 kg samkvæmt kvarðanum, en skráður 5 kg, sem sagt 10 pund og byggt á þreklegum vexti. Laxinn tók Black and Blue hálfs tommu keilu í Neðri Prestlænu en var landað miklu neðar eftir æsilegan eltingarleik niður hraðar flúðir og u
Fljótaá í Fljótum er gersamlega pökkuð af fiski. VoV Stóð óvænt til boða að veiða í ánni tvær vaktir og það er óhætt að segja að það var ekki friður fyrir fiski. Áin er fullsetin af bæði sjóbleikju og laxi, en samt er enn fiskur að ganga og mjög góður veiðitími eftir.
Að sögn Orra Vigfússonar, sem leigir ána ásamt Stangaveiðifélagi Siglufjarðar, þá er þetta allra besta veiði sem verið hefur í ánni frá því að samstarfið hófst. „Fljótaá er ekkert allra og hún er sums staðar erfið, en það er mikið af fiski í henni í sumar og menn hafa yfirleitt verið að gera það gott,“ sagði Orri.


Sami lax og að ofan og hér er stutt í löndun. Mynd Jón Eyfjörð.

Þegar VoV yfirgaf svæðið var búið að landa um það bil 220 löxum og hátt í 500 bleikjum. Áin er algerlega pökkuð af báðum sortum og þeir sem vilja vita þverskurð af stærð fiska í ánni geta horft ofaní við skurðinn frá neðra stöðvarhúsi Skeiðsfossvirkjunnar...þar liggur torfa af laxi, 30-40 stykki, stórir og smáir, en það eru bleikjurnar sem vekja hvað mesta athylgi þegar á er horft, því þær eru margar líkari löxum en bleikjum. Starfsmenn VoV á staðnum voru að tippa á að ein og ein í hæsta flokki væri 7-8 pund, jafnvel stærri. Mest er þó af þessiari venjulegu 1-2 punda stærð.



Á efri myndinni er Jón Eyfjörð með fallega bleikju úr Stekkjarhyl, en á neðri myndinni er bleikja úr Berghyl. Krókurinn var sterkur og einnig Guðmann. Alls konar púpur hafa gefið vel og bleikjan mest að taka andstreymis. Myndir gg.

Það er enn að ganga lax í Fljótaá, en það virðist hafa dregið úr bleikjugöngum, í það minnsta er mest af bleikjunni farin að taka lit. Það kemur varla að sök í veiðinni þar sem mjög mikið er komið af fiski. Þegar VoV var á ferð var frönsk fjölskylda einnig að veiðum í ánni og 12 ára stúlku voru kennd andstreymisfræðin. Hún tók sig til eftir það og mokaði 15 bleikjum í beit upp úr Bakkahyl og brosti allan hringinn eftir það!







Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst