Stöðva framkvæmdir í Héðinsfirði
www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item306994/ | Fréttir á landsvísu | 15.10.2009 | 18:48 | | Lestrar 734 | Athugasemdir ( )
Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur stöðvað framkvæmdir landeigenda í Héðinsfirði, sem ekki hafi tilskilin framkvæmdaleyfi. Um er að ræða lagningu vega frá hinum nýja þjóðvegi innarlega í Héðinsfirði og að Héðinsfjarðarvatni.
Einnig gerð bílaplans fyrir um þrjátíu bíla, vegarslóða vestan við Héðinsfjarðarvatn og norður í ós, gröft úr ósnum og þar með lækkun vatnsyfirborðs og girðingarvinnu. Formaður skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar segir að svo virðist sem ráðist hafi verið í framkvæmdir í Héðinsfirði í leyfisleysi. Þess vegna hafi framkvæmdir verið stöðvaðar, þar til málið hafi verið skoðað ofan í kjölinn. Tæknideild bæjarins mun skila bæjaryfirvöldum greinargerð um málið í vikulok.
frettir@ruv.is

Athugasemdir