Þjóðfundur – Fyrstu niðurstöður
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 14.11.2009 | 13:08 | | Lestrar 322 | Athugasemdir ( )
Heiðarleiki er það gildi sem þjóðfundarfulltrúum finnst mikilvægast fyrir samfélagið. Þar á eftir kemur jafnrétti, virðing og réttlæti. Því næst kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði. Fjölskyldan, jöfnuður og traust er einnig ofarlega á blaði.
Þetta er niðurstaða fyrstu vinnulotu Þjóðfundarins sem hófst í Laugardagshöll í morgun. Nærri 1.500 manns, frá öllum landshornum taka þátt. Stemmningin er gríðarlega góð og þátttakendur og starfsmenn einbeittir í því að skila góðri vinnu fyrir land og þjóð. Fundargestum er skipt í hópa og er unnið við 162 borð. Á hverju borði eru níu manns og var fyrsta verkefnið í morgun að komast að sameiginlegu gildismati. Vinnan heldur áfram og er næstu niðurstaðna að vænta um tvö leytið í dag.
Myndir frá Þjóðfundinum er hægt að nálgast HÉR
Facebook færslur HÉR

Athugasemdir