Tilkynning frá Sóttvarnalæknir og Ríkislögreglustjóra

Tilkynning frá Sóttvarnalæknir og Ríkislögreglustjóra Viðbúnaður á Landspítala færður á „virkjunarstig“ vegna álags af völdum inflúensunnarViðbúnaður á

Fréttir

Tilkynning frá Sóttvarnalæknir og Ríkislögreglustjóra

Viðbúnaður á Landspítala færður á „virkjunarstig“ vegna álags af völdum inflúensunnar


Viðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins. Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreint er í áætluninni; efst er neyðarstig. Á „virkjunarstigi“ viðbúnaðar gæti þurft að draga úr innlögnum sjúklinga og fresta þeim aðgerðum sem unnt er að fresta á Landspítalanum.




Á Landspítala lágu þrjátíu og níu inflúensusjúklingar um hádegi í gær, þar af níu á gjörgæsludeild. Tólf inflúensusjúklingar voru lagðir inn á einum sólarhring vegna inflúensunnar en tveir voru útskrifaðir á sama tíma. Meira reyndi í gær á starfsemi Landspítala vegna inflúensunnar en nokkru sinni fyrr frá því faraldurinn hófst.

Sjúklingar á gjörgæsludeildum frá tveggja til sjötíu og níu ára

Alls hafa 6.609 manns greinst með inflúensueinkenni hérlendis. Útbreiðsla faraldursins hefur ekki aukist á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið en veikin breiðist út á landsbyggðinni.

Frá 23. september 2009 hafa yfir hundrað manns verið lagðir inn á sjúkrahús hérlendis með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009, þar af tæplega níutíu manns á Landspítala. Af þeim eru þrír af hverjum fjórum með undirliggjandi sjúkdóma.

Frá októberbyrjun hafa fjórtán sjúklingar verið lagðir inn á gjörgæsludeildir með staðfesta inflúensu eða gruns um hana. Í gær voru alls tíu á gjörgæsludeildum, þar af einn á Akureyri og níu á Landspítala. Meðalaldur þeirra er um fimmtíu ár og aldursbilið frá tveggja ára til sjötíu og níu  ára.

Fólk á öllum aldri greinist með sjúkdóminn í öllum sóttvarnaumdæmum landsins. Flestir eru fimmtán til nítján ára og unnt er að greina hlutfallslega fjölgun sjúkdómstilvika barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri miðað við aldursdreifinguna í júlí og ágúst í sumar.

Inflúensutilfellum fækkaði nokkuð í aldurshópnum tuttugu til þrjátíu ára og fækkaði verulega hjá þeim sem eru sextugir og eldri. Þetta kann hins vegar að breytast þegar líður á faraldurinn.

Nánari upplýsingar:

Haraldur Briem
sóttvarnalæknir
sími 898 6008

Björn Zoega,
forstjóri  Landspítala
sími 8245560

Víðir Reynisson,
deildarstjóri almannavarnadeildar
sími 864 1759

Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst