Tuttugu pundari úr Fljótaá og áin kvik af fiski

Tuttugu pundari úr Fljótaá og áin kvik af fiski Veiðin hefur verið rífandi góð og það er mikill fiskur í Fljótaá í Fljótum þessa daganna. Bæði lax og

Fréttir

Tuttugu pundari úr Fljótaá og áin kvik af fiski

Þeir félagarnir voru að reyna neðansjávartökur og gleymdu að strjúka dropana af linsunni. En laxinn skilar sér samt vel og hér fær hængurinn kveðjukoss á kollinn frá Jóni Heimi.
Þeir félagarnir voru að reyna neðansjávartökur og gleymdu að strjúka dropana af linsunni. En laxinn skilar sér samt vel og hér fær hængurinn kveðjukoss á kollinn frá Jóni Heimi.
Veiðin hefur verið rífandi góð og það er mikill fiskur í Fljótaá í Fljótum þessa daganna. Bæði lax og sjóbleikja. Telja kunnugir að ástandið hafi ekki verið betra í mörg ár. Ca. tuttugu pundari veiddist í ánni í gær, en stórlaxar eru alls ekki ótíðir í ánni.

Jón Heimir Sigurbjörnsson, sem hefur starfað sem leiðsögumaður við ána fyrir leigutakann Orra Vigfússon, og hann veiddi 98 cm hæng í ánni í gær. Miðað við sverleika gæti alveg verið um tuttugu punda lax að ræða þó svo að kvarðinn umdeildi segi að þeir þurfi að ná 100 cm. Hvað um það, gefur Jóni Heimi orðið: "Þessi 98 cm. hængur fékkst nú í gærmorgun í Fljótaá á veiðistað nr. 18 er nefnist Klöppin (undir klöpp).  Tók hann rauða Frances keilutúbu og varð hann frelsinu feginn um 30 mínútum síðar. Er Fljótaáin í góðum gír þessa daganna bæði hvað laxgengd varðar og bleikju.  Algengt er að menn séu að fá 3 laxa á vakt  á sínum svæðum en 4 svæði eru í ánni.  Þá er bleikjan í miklum vexti í ánni og virðist hún liggja nánast í öllum pollum og hyljum í ánni.  Hefur undirritaður sjaldan séð ána í eins góðum málum þ.e.a.s. svo mikið af bleikju og laxi og eins hversu víða stórir boltar liggja innan um..."

Þetta er nokkru áður en efri myndin var tekin, augljóslega, og hér er Jón Heimir að glíma við tröllið.

 


Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst