Umdeild samþykkt
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 12.11.2009 | 13:21 | | Lestrar 706 | Athugasemdir ( )
Meirihlutinn í Fjallabyggð hefur samþykkt umdeilt mál og minnihlutinn setið hjá er varðar sveitarfélagið. Málið er Midnight Sun Race keppnin þar sem eytt hefur verið milljónum króna samkvæmt heimildum siglo.is. Siglo.is sendi bæjarstjóranum fyrirspurn í sumar þar sem beðið var um upplýsingar um kostnað vegna keppninnar en hefur ekki fengið nein svör.
Þann 19. október síðastliðinn samþykkti bæjarráð verksamning vegna siglingarkeppninnar 2010 sjá hér og svo bæjarstjórn 10. nóvember sjá hér. Þetta vekur undrun heimildamanna siglo.is að á sama tíma á að draga saman og fjárstyrkir minnkaðir við þær hátíðir og viðburði sem fyrir eru, samanber í ár. Það má vel vera að á Siglufirði verði skútuhótel fyrir Norður-Atlandshafið í framtíðinni en á meðan rædd er um hagræðingu samanber Áhaldahús þá finnst mörgum þetta vera fyrra.

Athugasemdir