Umferðaröryggi skólabarna
Börn eru smávaxin og hafa ekki jafngóða yfirsýn og fullorðnir. Í umferðinni er þýðingarmikið að sjá vel í kringum sig og sjást.
Börn eiga erfitt með að meta fjarlægð, hraða og stærð bíla og úr hvaða átt hljóð berast.
Börn skilja oft ekki mörg orð og orðatiltæki sem notuð eru um umferð og gera oft ekki grein fyrir þeim atriðum sem mikilvægust eru.
Börn eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og átta sig á hvað ökumenn ætla að gera.
Börn fá oft skyndihugdettur sem þau framkvæma á stundinni. Viðbrögð þeirra byggjast fremur á fljótfærni en skynsemi.
Börn sjá einungis smáatriði í umferðinni en ekki aðstæður eða umhvefi í heild.
Börn eiga oft erfitt með að einbeita sér nema að einu atriði í einu og aðeins í stutta stund í einu.
Hafa skal í huga að foreldrar eru fyrirmynd barnsins. Hvernig hegða þeir sér í umferðinni? Barnið lærir meira af því sem foreldrarnir gera en því sem þeir segja.
Tekið af vef Umferðarstofu http://www.us.is/
Með kveðju
Foreldrafélag Grunnskóla Siglufjarðar
Athugasemdir