Undraefni frá Primex ehf
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 07.07.2009 | 06:00 | | Lestrar 864 | Athugasemdir ( )
Við sögðum frá því fyrir skemmstu að við myndum fjalla meira um framleiðslu Primex ehf. og nú er komið að ChitoClear en Sigríður Vigfúsdóttir leiðir okkur í sannleikann um efnið. Einnig birtum við grein sem birtist í Hestar og Hestamenn 25. júní síðastliðinn.
Eitt af spennandi verkefnum hjá Primex um þessar mundir er að markaðssetja sáraúða undir vörumerkinu ChitoClear.
Úðinn er sérstaklega græðandi á öll sár þar með talin brunasár. Úðinn er ætlaður fyrir öll dýr stór og smá en það er ekkert til fyrirstöðu
að nota hann á fólk enda efnið algjörlega náttúrulegt og skaðlaust. Við hjá Primex höfum verið að selja hráefni til sárabindaframleiðslu
síðan 2001 og höfum því góða reynslu af því hvað þarf til að framleiða góða vöru sem virkar. Hins vegar kviknaði hugmyndin að þessum sáraúða
fyrir 3 árum og höfum við verið að þróa og sannprófa vöruna síðan þá. Við höfum fengið dýralækna í lið með okkur bæði hér heima og í Þýskalandi.
Það er skemmst frá því að segja að við höfum ekki fengið annað en jákvæð viðbrögð hjá þeim sem hafa prófað efnið, bæði frá dýralæknum og
eigendum dýra. S.l. tvö ár hefur farið fram rannsókn á virkni efnisins undir umsjá Dr. Alexanders Koch hjá Tierklinik–Oerzen í Þýskalandi. Niðurstöðurnar verða birtar núna í lok júlí og í framhaldi af því munum við stefna í útrás og erum þegar búin að gera samning um dreifingu efnisins í Þýskalandi og fleiri löndum í evrópu.

Hér má sjá greinina sem birtist í blaðinu Hestar og Hestamenn þann 25. júní 2009.
Undraefni á úðabrúsa
Primex ehf. á Siglufirði hefur sett á markað sáraúða, sem unninn er úr
rækjuskel sem veidd er í Norður-Atlandshafi. Allt bendir til að úðinn sé mjög áhrifaríkur við meðhöndlun á opnum sárum. Dýralæknar hafa notað hann um nokkurra mánaða skeið, meðal annars á hesta.
Íslensk náttúruleg framleiðsla
Framleiðslan er alíslensk og unnin úr náttúrulegum hráefnum. Engin
kemísk efni eru notuð í úðann. Primex ehf. hefur framleitt virka efnið til meðhöndlunar á sárum síðan 2001. Sem dæmi þá notar bandaríski herinn efnið í plástra. Sáraúðinn hefur verið í tilrauna framleiðslu síðastliðin þrjú ár. Varan var sett í neytendapakkningar á þessu ári. Síðastliðin tvö ár hefur verið í gangi rannsókn á virkni efnisins hjá Tierklinik–Oerzen í Þýskalandi og munu niðurstöður verða birtar í lok júlí.
Græðandi og blóðstemmandi
Dýralæknamiðstöðin á Hellu hefur haft úðann til prófunar í tæpt ár.
Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir, segir að engar samanburðar
rannsóknir hafi verið gerðar á lyfinu, en reynslan af notkun þess lofi góðu.
"Við höfum ekki gert neinar nákvæmar rannsóknir á virkni lyfsins, en
tilfinning okkar er sú að það hafi bæði græðandi og blóðstemmandi
áhrif. Við höfum einnig selt úðann til dýralækna út um landið og
þeirra reynsla er einnig góð. Það er mikill kostur að hafa efni eins
og þetta í úðaformi. Þá þarf maður ekki að snerta sárið, sem oft veldur
sársauka. Úðinn virðist henta bæði á stór opin sár og litlar skeinur,
og hefur stemmandi áhrif á blæðingu. Við höfum einnig prófað það á
múkk og það lofar góðu," segir Charlotta.
Úðinn hefur til þessa verið markaðssettur sem dýralyf, en þá má einnig
nota á fólk. Dreifingaraðili er Vistor hf. í Garðabæ.

Sigríður Vigfúsdóttir

Athugasemdir