Unnið hörðum höndum við Breiðstræti
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 28.06.2009 | 08:00 | | Lestrar 631 | Athugasemdir ( )
Það er mikil framkvæmdagleði hjá Andrési og Guðnýju á Hverfisgötunni, eða Breiðstræti eins og gatan er oft kölluð af gárungunum. Andrés vinnur öllum stundum við að steypa upp stigann, sem er farinn að skemmast. Húsið verður allt múrað að utan í stað þess að setja klæðningu á það. Það er gert til þess að halda því í sem upprunalegasta formi. Guðný sinnir garðinum að alúð en hún plantaði hátt í 400 túlípönum fyrr í sumar, það er sko ekkert hálfkák á þessum bæ. Fleiri myndir HÉR


Athugasemdir