Viðtal við Róbert Haraldsson vegna Pæjumóts TM

Viðtal við Róbert Haraldsson vegna Pæjumóts TM Hvernig gengur undirbúningurinn fyrir Pæjumótið.Undirbúningur fyrir mótið hefur gengið mjög vel þrátt fyrir

Fréttir

Viðtal við Róbert Haraldsson vegna Pæjumóts TM

Róbert Haraldsson formaður KS
Róbert Haraldsson formaður KS
Hvernig gengur undirbúningurinn fyrir Pæjumótið.

Undirbúningur fyrir mótið hefur gengið mjög vel þrátt fyrir ástandið í þjóðfélaginu. Ég var svolítið smeikur í vor um að það yrði erfitt að halda úti svona stóru móti, sérstaklega þar sem allt hefur hækkað og ekki gátum við hækkað þátttökugjaldið. Það eru allir að draga saman, hvort sem við tölum um Bæjarfélagið, stór eða lítil fyrirtæki. Enn, sem betur fer erum við með fasta kúnna ef svo má segja sem styrkja mótið rausnarlega og án þeirra væri þetta ógjörningur.

Hvað taka mörg lið þátt í mótinu þetta árið og hvað eru margir þátttakendur.

Það verða á bilinu 85-90 lið sem taka þátt í ár, þetta er aukning um ca. 15 lið frá því í fyrra. Þetta er mjög passlegt, það má ekki fara yfir 100 lið þar sem við höfum hreinlega ekki húsnæði né þjónustugetu fyrir svo marga keppendur.  Keppendur verða um 800.



Hvernig gengur að fá fólk til að starfa við mótið.

Það hefur gengið ágætlega, stjórn félagsins ákvað að koma á móts við heimilin með því að gefa frí æfingagjöld fram að áramótum fyrir þá foreldra sem hjálpa til um helgina. Þetta hefur mælst vel fyrir hjá þeim sem ég hef rætt við og vonandi að allir geti nýtt sér þennan möguleika. Svo eru það gömlu refirnir og úlfynjurnar sem hafa staðið vaktina í fjölda ára, án þeirra væri þetta mót ekki í þeim “klassa” sem það er í dag. Þetta fólk á svo sannarlega miklar þakkir fyrir.

Hvaða þýðingu telur þú að Pæjumót og Nikulásarmót hafi á bæjarfélagið okkar.

Mjög mikla. Í fyrsta lagi er þetta grundvöllurinn fyrir því að hægt sé að reka KS og Leiftur. Og ef að við getum rekið íþróttafélag með góðu móti, þá erum við að skapa börnum og unglingum tækifæri á að stunda íþróttir og þá eru meiri líkur á því að unga fólkið haldi sér frá öllu því slæma sem í boði er. Þannig að þetta hefur allt áhrif og ég vildi stundum að stjórnendur Bæjarins myndu átta sig á því að börnin okkar eru það sem skiptir máli, ef ekki er hlúð að þeim á öllum vígstöðvum, þá getum við alveg eins yfirgefið staðinn.  Auglýsingin útá við er mikil, það er hægt að segja það með sanni að nánast allar stúlkur á landinu sem spila fótbolta hafa einhverntímann komið á Pæjumót á Sigló og þær gleyma því seint. Þær skila sér vonandi síðar á Þjóðlagahátíð, Síldarævintýri eða bara í heimsókn. Íþróttafélög hanga á bláþræði á þessum síðustu og verstu tímum, þess vegna verða stjórnendur samfélagsins að átta sig á því að með því að styrkja íþróttastarfsemina, þá er verið að tryggja framtíðina. Það verður að hugsa til framtíðar, en ekki bara fjögur ár í einu eða fram að næstu kosningum. Menntun og heilsa er það sem skiptir máli og samfélagið lognast útaf ef þessi atriði eru ekki efst á forgangslistanum.



Skiptir stuðningur TM miklu máli varðandi Pæjumótið.

Stuðningur Tryggingarmiðstöðvarinnar skiptir öllu máli og það er ótrúlegt hvað þeir eru   að gera vel við kvennaboltann á Íslandi. Eins og áður hefur komið fram þá skiptir stuðningur fjöld fyrirtækja öllu máli í þessum bransa, það er ekki hægt að hafa þátttökugjaldið hærra og því er stuðningur t.d. TM, SPS, Samkaups, Vífilfels, Rammans og allra annara sem styrkja mótið á einn eða annan hátt ómetanlegur.

Hvað er reiknað með mörgum gestum á mótið fyrir utan þátttakendur.

Fleirum en á Síldarævintýrið, sem gerir Pæjumótið að stærsta viðburði á Siglufirði þetta árið. Það má alveg búast við 2000 foreldrum og gestum sem fylgja skvísunum.

Ég vil í lokin nota tækifærið og þakka öllum þeim sem styrkja mótið og einnig vil ég þakka sérstaklega öllum þeim sem koma að mótinu í sjálboðavinnu. Sjálboðavinnan  á mótinu verður seint metin til fjár, því þykir mér afar leitt að frétta að forseti Bæjarstjórnar láti það útúr sér að það sé unnin meiri sjálfboðavinna á Nikulásarmótinu heldur en á Pæjumótinu. Það er greinilegt að hann hefur ekki komið á Pæjumót og ég skora á hann að láta sjá sig hér um helgina og njóta þess að vera innan um skemmtilegar stelpur á “besta” fótboltamóti fyrir stúlkur á landinu.
Að gera uppá milli þessara viðburða er tóm vitleysa því fólkið í fjörðunum báðum er frábært og viðburðirnir báðir mikil lyftistöng fyrir bæinn okkar Fjallabyggð. Það styttist í sameiningu KS og Leifturs og nú þegar erum við að spila saman í öllum flokkum. Þegar að sameiningu kemur þá vona ég að það heyrist hátt í jákvæðu fólki sem vill efla mannlífið og íþróttalífið í bænum og þeir neikvæðu halda sig bara heima og segja sem minnst.

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst